Frjálsar íþróttir - nýtt

Á þessu námskeiði prófum við fjölbreyttar æfingar úr frjálsum íþróttum eins og hlaup, stökk og kast.
Við lærum í rólegheitum og leggjum áherslu á að hafa gaman og hreyfa okkur.
Námskeiðið hentar fjölbreyttum hópi og því um að gera að prófa
Markmið:
• Auka styrk og úthald
• Læra nýjar hreyfingar
• Fá jákvæða upplifun af íþróttum
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.