H.A.F. YOGA - slökun í vatni

H.A.F. Yoga (Holistic aqua flow yoga) eru mjúkir og slakandi tímar í jógaflæði í vatni, hugleiðslu og fljótandi slökun. Gerðar eru teygjur og flæðisæfingar sem aðlagaðar eru að vatni. Notuð er núvitund og hugleiðsla og flot til að slaka vel á í vatninu.

  • Hreyfing í vatni, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðva og losar streitu. Þú losar spennu í öllum líkamanum.
  • Að fljóta dregur úr streitu, léttir á eymslum, vinnur gegn svefnleysi, Þunglyndi og kvíða.
  • Eftir gott flot finnur einstaklingurinn fyrir líkamlegri og andlegri endurnýjun.
  • Blóðþrýstingur og hjartsláttur hægir á sér um leið og þú sekkur inn í djúpa og afslappandi slökun.

 Markmiðið er að ná að njóta þess að sleppa takinu í kyrrð og ró.

  • Námskeiðið er í 8. vikur og er kennt x 1 í viku,
  • Hver tími er 45 mínútur. 20 mín í æfingar, flæði og teygjur og 25 mínútur í hugleiðslu og flot.
  • Kennari kennir af sundlaugarbakka.
  • Hámarksfjöldi í hóp eru 6 þátttakendur og er námskeiðið aðlagað að hverjum og einum.  
  • Námskeiðið er fyrir alla óháð fötlun.
  • Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
  • Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki í umsókn hvaða kennslutími kemur alls ekki til greina.

Staður: Sundlaug sérnámsbrautar Fjölbrautaskólans við Ármúla og er öll aðstaða sérstaklega aðlöguð að fötluðu fólki. 

Rakel er viðurkenndur yogakennari og menntaður þroskaþjálfi með mikla reynslu í þjálfun/kennslu í rúm 30 ár.

 

Vinsamlegast athugið:

Enginn stuðningsfulltrúi er til aðstoðar frá Fjölmennt í sundlauginni og  þeir sem þurfa aðstoð í klefa eða á biðtíma fyrir og eftir tímann þurfa að hafa aðstoð að heiman. Að öðrum kosti getur viðkomandi ekki sótt þetta námskeið.

 

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Verð: 13.000
Tími: 8 vikur
Rakel Ágústsdóttir