Japanska í Mími - Nýtt

Námskeiðið er ætlað byrjendum í japönsku. Markmið námkeiðsins er að þátttakendur fái góða innsýn í japanska tungu, lífsstíl og menningu.
Japönsku hljóðstafrófin „hiragana“ og „katakana“ eru kynnt og farið er yfir undirstöðuatriði í málfræði.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti átt í einföldum orðaskiptum við mismunandi aðstæður.
Umsóknarfrestur er til 16.júní
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.
Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Mími og þau sem þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér. Að öðrum kosti getur viðkomandi ekki sótt þetta námskeið.