Kaffi-tíminn

Þetta námskeið hentar þeim sem elska að baka. Bakaðar verða kökur og brauð, allt eftir áhuga

hvers og eins. Þátttakendur kynnast bökunargerð, helstu bökunaráhöldum og taka þátt í sameiginlegu borðhaldi.  

Unnið er eftir myndrænum/skrifðum uppskriftum eftir því hvað hentar hverjum þátttakanda. 

Stefnt er að því að þátttakendur:  

  • Taki þátt í bökunargerð, borðhaldi og frágangi eftir bökun.  

  • Njóti borðhaldsins.

  • Upplifi ánægjuleg samskipti og njóti stundarinnar. 

Umsóknarfrestur er til 16.júní. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð: 16.100 - 30.200 kr.
Tími: 7 - 9 vikur