Karaoke - Nýtt

Á námskeiðinu getur þú sungið lag sem þér finnst skemmtilegt og átt góða stund í hópi. Við syngjum ein og líka saman. 

 

Á námskeiðinu gefst þátttakendum kostur á því að syngja skemmtileg lög í mikrófón með karaoke undirspili og hlustað á aðra í hópnum syngja sín uppáhaldslög. Skemmtileg stund þar sem þátttakendum gefst kostur á því að æfa sig í að koma fram í litlum hópi. 

 

Við reynum að mæta 1-2 sinnum yfir önnina í karaoke á alvöru karaoke stað.

 

Tilvalið tækifæri til þess að æfa söngtaktanna fyrir veislur og partý. 

 

Umsóknarfrestur er til 16.júní

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

 

Staður: Fjölmennt
Verð: 18.200 kr - 20.900 kr.
Tími: 12 vikur