Líf mitt með öðrum

Markmið námsins er að auka lífsgæði og vald einhverfs fólks yfir aðstæðum sínum, sjálfsvitund og tjáningu vilja og skoðana og að efla félagsleg samskipti og þátttöku á jafningjagrunni - þróa leiðir til virkrar þátttöku í eigin lífi og með öðrum. Að þátttakendur upplifi að vera öruggir og eigi ánægjulega samveru.

Tilgangur brautarinnar er að gefa fólki með flóknar samsettar fatlanir og takmörkuð tjáskipti tækifæri til aukins náms. Þannig vill Fjölmennt leggja áherslu á margbreytileika fólks og tækifæri í samfélagi fyrir alla.

Kennslugreinarnar eru þrjár: Sjálfstyrking og hreyfing, matreiðsla og listir.

Kennsla fer fram í fámennum hóp og lagt er upp með að námið sé hvetjandi fyrir þátttakendur og ánægjuleg upplifun. Ætlast er til að námið hafi gildi fyrir þátttakendur í daglegu lífi og tómstundum. Mikilvægt er að samstarf við talsmenn þátttakenda sé náið og aðstoðarmenn þeirra taki þátt í náminu þegar það á við.

Kennt er þrisvar sinnum í viku, 2-3 kennslustundir í senn.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð:
Tími: 14 vikur