Prjónagraff

Prjónagraff er prjónað eða heklað handverk sem ætlað er utan um hluti sem standa utandyra, oftast á fjölförnum stöðum eða við gangstíga. Handverkið verður listaverk sem fær að standa úti fyrir vegfarendur að njóta og er tilgangur verksins að fegra umhverfið.

Námskeiðið er í tvö skipti, 2 kennslustundir í senn.
Nánari tímasetning síðar. 
 

  • Fyrra skiptið vinna þátttakendur að verkum sínum í Fjölmennt, Vínlandsleið.
  • Seinna skiptið hittist hópurinn á vettvangi og verkunum valinn staður. 

Námskeiðstímabil sumarnámskeiðanna er 31.maí - 5.júní. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.

Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki. 

Umsóknarfrestur er 30.apríl.

 

Staður: Fjölmennt
Verð: 3.500
Tími: Tvö skipti