Prjónagraff og garnlitun - nýtt

 Á þessu námskeiði lærir þú að lita garn.

Þú notar svo garnið til að búa til prjónagraff.

 

Prjónagraff er þegar maður prjónar stykki og setur utan um hluti í umhverfinu.

Til dæmis:

  • Tré
  • Ljósastaur
  • Handrið

Prjónagraffið er þá listaverk sem þú skilur eftir þig og fólk fær að sjá og njóta.

 

Námskeiðið er 8 skipti, 2 kennslustundir í hvert skipti.

 

Í fyrsta tímanum litar þú garn með Kool Aid

Í hinum tímunum prjónar þú úr garninu og prjónagraffar umhverfið.

 

Gott er að koma með stóra prjóna, til dæmis stærð 8, 9 eða 10.

 

Umsóknarfrestur er til 16.júní. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Auglýst síðar
Verð: 17.700 - 22.800 kr.
Tími: 8 vikur
Snorri Rafn Hallsson