Segjum sögur

Allir geta sagt sögu. Á námskeiðinu fá þátttakendur tækifæri til að segja sögur. Að segja sögu gefur fólki rödd og aukið vald sem leiðir til sjálfseflingar. Sögur gera líf fólks ríkulegra; sögur úr hversdagslífinu, brandarar, skapandi sögur, sögur úr menningunni. Viðfangsefnin verða sótt í reynsluheim þátttakenda svo sem endursagnir, minningar, lífssögur, hversdagssögur, þjóðsögur, ævintýri og bókmenntir.

Námskeiðið er mótað að fyrirmynd hóps sögufólks með þroskahömlun í Englandi sem kallar sig "Open Storytellers" og hafa þróað aðferðir til að segja sögur og deila þeim með öðrum. Á heimasíðu þeirra má sjá ýmislegt sem hópurinn hefur unnið að: 

http://www.openstorytellers.org.uk/

Námskeiðið gefur þátttakendum tækifæri til þess að gera eigin sögur ríkulegri og deila þeim.

Unnin verða fjölbreytt verkefni þar sem unnið verður með sköpun, tjáningu, hlustun, skynhrif og flest það er gefur sögunni gildi. Nýtt verður tækni svo sem tölva eða snjalltæki eftir þörfum. 

Framvinda og efnistök námskeiðsins taka mið af þátttakendum hverju sinni.

 

Kennt er einu sinni í viku 1 - 2 kennslustundir í senn í 7 vikur.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð: 8.700-11.700
Tími: 7 vikur