Skapandi skrif - nýtt
Á námskeiðinu gera þátttakendur ýmsar tilraunir með texta og skrif. Kynntar verða leiðir til að öðlast innblástur, byggja upp sögu og ganga frá texta. Áhersla er lögð á sköpun og skrif-gleði frekar en stafsetningu eða málfræði.
Námskeiðið er ætlað bæði byrjendum og lengra komnum.
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.
