Skynjunarsögur - Íslensk menning
Skynjunarsögur – íslensk menning
Á námskeiðinu kanna og upplifa þátttakendur ólíka þætti íslenskrar menningar í gegnum fróðleik, skynjun og samveru. Við tengjum saman sögu og nútíma íslensks samfélags til að finna út hvað einkennir okkur sem þjóð. Námskeiðið byggir á hugmyndafræði Sensory Stories og leggur áherslu á þátttöku, tjáningu og miðlun fróðleiks í gegnum skynjun.
Markmið námskeiðsins:
- Að efla skilning á sérkenni íslensks samfélags á einfaldan og skynrænan hátt
- Að upplifa ólíka þætti íslenskrar menningar með öllum skynfærum
- Að örva áhuga og tjáningu
- Að skapa sameiginlega upplifun og tengingu við umheiminn
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.
