Söngleikir - nýtt

Fyrir þau sem hafa áhuga á söngleikjum, söng og sviðshreyfingum. 

Á námskeiðinu eru æfð atriði úr þekktum söngleikjum þar sem þátttakendur fá að spreyta sig í leik, söng og hreyfingu. Lögð er áhersla á gleði, tjáningu og samspil sviðslistanna. 

Markmið 

• Að þjálfa sviðsframkomu í gegnum söngleikjaformið

• Að efla rytma, hreyfingu og raddbeitingu

• Að styrkja sjálfstraust og sköpunargáfu

• Að njóta samspils söngs, sviðshreyfinga og leiklistar 

 

Umsóknarfrestur er til 16.júní

 

Bréf um inntöku mun berast þegar lágmarksþátttaka hefur náðst.

 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina

Staður: Auglýst síðar
Verð: 10.400 - 25.400 kr.
Tími: 7 - 16 vikur