Sterkari sjálfsmynd

Hvernig hugsar þú um sjálfa/n þig?

Finnst þér stundum að þú sért ekki nógu góð/ur/gott?

Finnst þér stundum erfitt að vera góð/ur við sjálfa/n þig?

 

Á þessu námskeiði ætlum við að læra um sjálfsmynd og sjálfsmat.

Það þýðir meðal annars hvernig við sjáum okkur sjálf og hvað okkur finnst um okkur sjálf.

 

Á námskeiðinu ætlum við meðal annars að:

  • Læra hvað sjálfsmynd er
  • Læra um sjálfsmat
  • Skoða hvernig við hugsum um okkur sjálf og hvaða áhrif þær hugsanir hafa á líðan okkar.
  • Læra að þekkja neikvæðar hugsanir um okkur sjálf og takast á við þær.
  • Uppgötva eigin styrkleika og góða eiginleika.
  • Æfa okkur í að vera góð við okkur sjálf, líka þegar okkur gengur ekki eins vel og við vildum.
  • Læra leiðir til að byggja upp betra sjálfsmat í daglegu lífi.

 

Á námskeiðinu ætlum við að læra nýja hluti, spjalla saman og gera skemmtileg verkefni og æfingar. Öll geta tekið þátt á sinn hátt og námskeiðið hentar fólki með fjölbreyttar tjáskiptaleiðir.

 

Markmiðið er að læra að hugsa betur um okkur sjálf, sjá hvað er gott við okkur og muna að við erum öll mikilvæg og einhvers virði, alveg eins og við erum.

 

Staður:
Fjölmennt, Vínlandsleið 14.

Námskeiðið er kennt yfir helgi 4 klst í senn hvorn dag

 

Verð: 8.000 kr

Kennari á námskeiðinu: Íris Indriðadóttir sálfræðingur hjá Björkini

 

Vekjum athygli á því að námskeiðið verður engöngu kennt ef lágmarks þátttaka næst á námskeiðið

Staðfesting á námskeiði á námskeiði með tímasetningum og öðrum praktískum upplýsingum verður send í tölvupósti þegar lágmarksþátttöku hefur verið náð

 

Staður: Fjölmennt
Verð: 8.000 kr
Tími: 1 helgi