Stuðmennt - nýtt
Hljómsveitin Stuðmenn er ein ástsælasta hljómsveit landsins. Námskeiðið Stuðmennt er helgað hljómsveitinni Stuðmönnum, þar sem lög hljómsveitarinnar verða krufin til mergjar og svo spiluð og sungin með lifandi undirspili. Söngtextum verður varpað upp svo allir geti tekið þátt í hópsöng í rífandi stemmingu.
Í hverjum tíma verða skoðaðar perlur frá hljómsveitinni.
Markmið námskeiðsins
- Fræðast um hljómsveitina Stuðmenn
- Tengja saman tímabil í íslenskri tónlist
- Skoða og skapa umræður um texta hljómsveitarinnar
- Tengja saman þekktar perlur íslenskra kvikmynda við hljómsveitina Stuðmenn
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.
