Styrkur og slökun í vatni - nýtt!

Námskeiðið fer fram í Klettaskólasundlauginni og hentar öllum sem vilja njóta hreyfingar í vatni á rólegan, öruggan og uppbyggilegan hátt.

 

Lögð er áhersla á einfaldar þolæfingar og létta hreyfingu í vatni þar sem þátttakendur vinna á sínum eigin hraða. Notast er við ýmis hjálpartæki eins og núðlur, kork, bolta og fleira til að styðja við hreyfingu, jafnvægi og vellíðan.

 

Í lok hvers tíma er notaleg slökun í vatni þar sem notuð eru flot frá Flothetta.is sem hjálpa líkama og huga að slaka á.

Námskeiðstími fimmtudagar kl 14:20-15:05

Námskeiðið er einstaklingsmiðað, styður við vellíðan og hentar öllum óháð reynslu eða getu.

 

Vinsamlegast athugið: takmarkað pláss er á námskeiðið!

Umsóknarfrestur er til 16.júní. 


Ekkert aðstoðarfólk er í sundlauginni eða klefa þannig að þau sem þurfa aðstoð í klefa eða á biðtíma fyrir og eftir tímann þurfa að hafa aðstoð að heiman. Að öðrum kosti getur viðkomandi ekki sótt þetta námskeið.

Staður: Sundlaug Klettaskóla
Verð: 37.800 kr
Tími: 6 vikur