Sumarlegir blómapottar og falleg sumarblóm

Á þessu námskeiði málum við og skreytum blómapotta og setjum í þá falleg sumarblóm.  Tilvalið fyrir garðinn, pallinn, svalirnar eða sem gjöf.

Námskeiðið er í tvö skipti. 

Fyrra skipti :      2 kennslustundir. 
Seinna skipti :  1,5 kennslustundir.

Nánari tímasetning verður auglýst síðar.

Staður: Fjölmennt, Vínlandsleið.

Námskeiðstímabil sumarnámskeiðanna er 31. maí til 5. júní.

Umsóknarfrestur er til 30.apríl.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki. 

Staður: Fjölmennt
Verð: 6.500
Tími: Tvö skipti