Tengjumst - nýtt
Sumt fólk á mjög erfitt með að tengjast öðrum og getur verið í hættu á að einangrast og missa af tækifæri til að vera með öðru fólki. Það er mikilvægt að finna leiðir fyrir hvern og einn til að tengjast öðrum og styrkja þar með sjálfsmynd og auka vellíðan.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að finna leiðir til að tengjast og eiga samskipti með því að aðlagast þátttakandanum og búa til ”svarandi umhverfi” (e. responsive environment) þar sem þátttakandinn fær óskipta athygli og öllum merkjum um áhuga og tjáningu er gefinn gaumur og brugðist er við þeim.
Námskeiðið er kennt í því umhverfi sem hentar þátttakandanum hverju sinni til að tengjast og njóta samveru – það getur verið úti í náttúrunni, inni í kennslustofu með efnivið sem þátttakandi sýnir áhuga eða á göngum um húsið þar sem þátttakanda líður vel.
Unnið er eftir nálguninni HOP (Hanging Out Program) sem veitir ákveðinn ramma fyrir samveru og skráningu lærdóms sem nýst getur í áframhaldandi námi eða öðrum aðstæðum daglegs lífs. Fyrir nánari upplýsingar um HOP sjáið viðtal við Sheridan Forster, upphafskonu nálgunarinnar.
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.
