Tilfinningastjórnun - að skilja og takast á við tilfinningar
Tilfinningastjórnun – að skilja og takast á við tilfinningar
Verður þú stundum mjög reið/ur, leið/ur eða áhyggjufull/ur?
Finnst þér stundum erfitt að ráða við tilfinningarnar þínar? Viltu læra hvað þú getur gert þegar tilfinningarnar verða mjög sterkar?
Á þessu námskeiði ætlum við að læra um tilfinningar, hvernig þær hafa áhrif á okkur og hvað við getum gert þegar okkur líður illa.
Á námskeiðinu ætlum við meðal annars að:
- Læra að þekkja mismunandi tilfinningar.
- Skoða hvernig við finnum fyrir tilfinningum í líkamanum.
- Læra hvað getur gert okkur reið, leið eða kvíðin.
- Læra að þekkja merki um að tilfinningarnar séu að verða sterkar.
- Æfa okkur í að róa okkur niður þegar við verðum reið, kvíðin eða í uppnámi.
- Læra hvað við getum gert þegar við eigum erfitt með tilfinningar okkar.
Á námskeiðinu ætlum við að spjalla saman, gera skemmtileg verkefni og prófa æfingar.
Markmiðið er að skilja tilfinningar okkar betur og læra leiðir til að takast á við þær.
Staður:
Fjölmennt, Vínlandsleið 14.
Námskeiðið er kennt yfir helgi 4 klst í senn hvorn dag
Verð: 8.000 kr
Kennari á námskeiðinu: Íris Indriðadóttir sálfræðingur hjá Björkini
Vekjum athygli á því að námskeiðið verður engöngu kennt ef lágmarks þátttaka næst á námskeiðið
Staðfesting á námskeiði á námskeiði með tímasetningum og öðrum praktískum upplýsingum verður send í tölvupósti þegar lágmarksþátttöku hefur verið náð
