Tjáning með tjáskiptatæki
Tilgangur námskeiðsins er að gefa fólki sem notar tjáskiptatæki tækifæri til að bæta tjáningu sína og auka möguleika þess til að nýta tjáskiptatækið í daglegu lífi.
Námskeiðið hentar þeim sem eiga tjáskiptatæki, hvort sem það notar snertiskjá eða augnstýribúnað með tækinu. Á námskeiðinu eru búnar til og unnið með tjáskiptatöflur sem tengjast áhugamálum þátttakanda og umræðuefnum sem skipta honum/henni máli í daglegu lífi. Æfingar eru gerðar í bendifærni - með þeim búnaði sem þátttakandi notar - og til þess notað allt frá einföldum valtöflum og leikjum yfir í flóknari tjáskiptatöflur eftir því hvar þátttakandi er staddur. Skoðaðar eru stillingar á tækinu og tjáskiptaforritinu með tilliti til hvað hentar þátttakanda. Lögð er áhersla á að vera þátttakanda fyrirmynd í notkun tjáskiptatækisins og hvetja til notkunar með því að bregðast við öllum tilraunum hans til tjáningar með tækinu.
Þátttakendur þurfa að mæta með sitt eigið tjáskiptatæki og tilheyrandi búnað á námskeiðið.
Þátttakendur mæta með tengil/talsmann á námskeiðið sem getur annars vegar miðlað upplýsingar um áhugamál og umræðuefni fyrir tjáskiptatöflur og lært að búa til nýjar töflur og hins vegar lært á helstu stillingar tækisins og forritsins og hvernig á að vera fyrirmynd og hvetja þátttakanda til að nota tækið. Tengill/talsmaður getur síðan aðstoðað þátttakanda við að yfirfæra námið á daglegt líf með því að leiðbeina annað starfsfólk og vera fyrirmynd í notkun tjáskiptatækis í ólíkum aðstæðum.
Umsóknarfrestur er til 20.nóvember
ATH! takmarkað námskeiðspláss eru í boði á námskeiðið.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeiðið mun berast eftir miðjan desember
