Tölvuleikjagerð með Scratch - nýtt
Tölvuleikjagerð með Scratch
Scratch er þróað af MIT tækniháskólanum og er verkfæri sem gerir forriturum kleift að skapa og læra að forrita.
Tölvuleikjagerð með Scratch er stórskemmtilegt námskeið þar sem nemendur læra hvernig á að hanna og forrita sína eigin tölvuleiki. Nemendur læra að teikna og hanna sínar eigin persónur og umhverfi og forrita svo til að búa til tölvuleik. Á námskeiðinu tileinka nemendur sér grunnhugtök forritunar og leikjagerðar með því að búa til stutta tölvuleiki/verkefni. Hvert verkefni einblínir á ákveðna þætti forritunar.
Tölvur og tæki til forritunar eru á staðnum.
Kennslustaður: Háskólinn í Reykjavík
Námskeiðið er kennt í samstarfi við Opna háskólann í Reykjavík
Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Háskólanum í Reykjavík og þau sem þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér.
Umsóknarfrestur er til 16.júní
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast þegar lágmarksþátttöku hefur verið náð.
