Útivera og náttúrutenging í öllum veðrum
Námskeiðið er fyrir þau sem finnst gott að fræðast úti í náttúrunni.
Hvað gerum við á námskeiðinu?
Við til dæmis:
- skoðum svæðið í kringum okkur
- hreyfum okkur
- gerum núvitundaræfingar
- tengjum okkur við náttúruna
Við upplifum náttúruna eins og hún er hverju sinni.
Við finnum fyrir veðri og vindi, snjó og regni, sól, áferð og lykt.
Við leikum okkur, hreyfum okkur og njótum þess að vera úti.
Af hverju er námskeiðið gott?
Markmiðið er að hjálpa þér að tengjast náttúrunni.
Þú getur lært að nota náttúruna til að finna ró og njóta.
Mikilvægt
Námskeiðið er alltaf kennt úti, sama hvernig viðrar (nema þegar það eru veðurviðvaranir sem hindra þátttöku).
Þess vegna er mikilvægt að klæða sig eftir veðri
Umsóknarfrestur er til 20.nóvember
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.
