Valdefling – Virkni - Fjölbreyttar tjáskiptaleiðir

Námskeiðið er ætlað fólki með fjölþætta fötlun s.s. hreyfihömlun, skynjunarvanda, tjáskiptaerfiðleika og vilja styrkja sjálfsmynd sína og efla vald á eigin lífi.
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur hafi vettvang til valdeflingar, að efla virkni og þátttöku á eigin forsendum.
Viðfangsefni miðast við áhuga hvers og eins, í hópi eða einstaklinglega og eru valin í samvinnu við þáttakendur.
Gert er ráð gert ráð fyrir fjölbreyttum tjáskiptaleiðum; að hver og einn hafi möguleika til tjáningar og samskipta á eigin máli og geti haft áhrif á framvindu námskeiðsins; að hver rödd heyrist.
Ef þátttakendur vilja eða þarfnast aðstoðar tengla / aðstoðarfólks með þætti sem varða skipulag, framkvæmd s.s. viðfangsefni, tjáskiptaleiðir, búnað, tæki, munu kennarar leita samvinnu við þá.
Leitast er við að skapa öruggt og þægilegt umhverfi sem býður upp á samveru og samtal um áhugamál og annað sem hugurinn beinist að hverju sinni, eða svigrúm / tækifæri til einveru / kyrrðar / að vera í einrúmi.
Námskeiðið er einu sinni í viku, 3 kennslustundir í senn.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.