Viltu læra leiklist? - nýtt

Námskeið fyrir þau sem vilja kynnast leiklist og leikhúsi í fyrsta sinn. 

Námskeiðið sameinar verklega og fræðilega vinnu þar sem þátttakendur kynnast grunnatriðum leiklistar, æfa leikræna tjáningu og fræðast um heim leikhússins.

Stefnt er á að fara í heimsókn í leikhús og unnið með fjölbreytt verkefni tengd sviðslistum. 

Námskeiðið hentar ýmist sem inngangsnámskeið fyrir frekara leiklistarnám í Fjölmennt eða sem námskeið fyrir þau sem vilja nýta sér verkfæri leiklistar til að auka eigin lífsgæði.

 

Markmið 

• Að kynna leiklist og leikhúsi á aðgengilegan hátt

• Að efla sjálfstraust og sköpunargleði

• Að þjálfa samvinnu og samskipti

• Að kynnast grunnatriðum sviðslistar 

 

Umsóknarfrestur er til 16.júní.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeiðið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Auglýst síðar
Verð: 12.700 - 28.800 kr.
Tími: 7 - 14 vikur