Viltu prófa að hekla - nýtt
Stutt námskeið fyrir þau sem vilja prófa að hekla og læra helstu hugtök sem tengjast hekli.
Námskeiðið hentar fyrir byrjendur og þau sem vilja rifja upp hekl.
Þátttakendur gera lítið prufustykki eða velja sér verkefni með aðstoð kennara.
Markmið námskeiðsins:
- Læra helstu undirstöðuatriðin í hekli
- Læra hvaða áhöld eru notuð við hekl
- Velja verkefni við hæfi
- Kynnast hekli sem áhugamáli
Umsóknarfrestur er til 16.júní
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst ef lágmarksþátttaka næst
