Bragðverkstæðið - Braðgverkstæðið: námskeið um næringarfræði
Á námskeiðinu færðu skemmtilega fræðslu um næringu og mat. Síðan förum við beint í bragðverkstæði þar sem þú prófar, blandar og uppgötvar mismunandi brögð og áferðir og sérð hvernig litlar breytingar geta gert hollan mat mun meira spennandi.
Í lokin færðu einfalt og skemmtilegt heimaverkefni til að prófa heima, svo þú finnir hvað virkar best fyrir þig. Þú lærir líka hvernig þú setur saman góða, næringarríka máltíð sem mettar vel og gefur stöðuga orku.
1) Hvað er hollt í alvöru?
Við ræðum næringu á einfaldan hátt: matarhringinn, prótein–fitu–kolvetni, trefjar og smá um ör-næringu.
2) Bragðkort líkamans
Af hverju er sumt ómótstæðilegt? Við prófum sætt, súrt, salt, beiskt og umami og lærum hvernig krydd, sýra og fita geta gert grænmeti ótrúlega gott.
3) Áferð matarins
Við skoðum stökk, mjúkt, kremkennt, seigt og loftkennt og lærum hvernig áferð gerir matinn spennandi.
Áferðaleikur: Bragð + áferð í verki
4) Trefjar, blóðsykur og mettun
Hvernig heldurðu orkunni jafnvægri yfir daginn?
Hvað hjálpar að vera saddur lengur?
Við förum í trefjar, blóðsykur og snjallar lausnir fyrir morgunmat og millimál.
Umsóknarfrestur er til 1.mars
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Framvegis símenntun
Námskeiðið eru 2 skipti
Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Framvegis og þau sem þurfa aðstoð þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér.
Tölvupóstur sem staðfestir þátttöku verður sendur á umsækjendur þegar lágmarksþátttöku hefur verið náð
Námskeiðið er eingöngu haldið ef lágmarksþáttaka næst
