Danska

Þetta er námskeið fyrir byrjendur sem hafa áhuga á að kynnast nýju tungumáli. Farið verður í grunnatriði í tungumálinu, talmál, framburð og orðaforða. Einnig fá þátttakendur að kynnast menningu og siðum þjóðar.

Námskeiðið er kennt í staðnámi í Fjölmennt og þátttakendur fá æfingar til þess að vinna heima á milli kennslustunda.

Kennt er einu sinni í viku, 2 kennslustundir í senn í 8. vikur,

Mælt er með að þátttakendur hafi tengilið sem getur aðstoðað við námið heima.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

 

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

 

Staður: Fjölmennt
Verð: 11.800
Tími: 8 vikur
Helle Kristensen