Prjónum saman

Á námskeiðinu eigum við notalega stund saman í hópi með prjónana.

 

Námskeiðið er kennt á miðvikudögum kl 12 - 13 í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43. Strax á eftir eða kl 13 er prjónahittingur á vegum samfélagshússins á sama stað og því kjörið að sitja aðeins lengur með prjónana. 

Samfélagshús borgarinnar eru opin hverjum sem vill þau nýta.


Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakendum fyrir möguleikum samfélagshúsanna og auka tækifæri til þess að sinna áhugamálum í hópi.

 

Þátttakendur koma með eigin verkefni á námskeiðið og geta fengið aðstoð hvar sem þeir eru staddir í ferlinu.

 

Kennslutímabil: 13.maí -1.júlí

Kennslutími: kl 12-13

 

Athugið að enginn félagsliði er til aðstoðar í Listvinnslunni, þau sem þurfa aðstoð þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með sér.

Staður: Samfélagshúsið Bólstaðarhlíð 43
Verð:
Tími: 8 skipti
Snorri Rafn Hallsson