Radio Fjölmennt

Á námskeiðinu læra þátttakendur að búa til þætti fyrir podcast/hlaðvarp sem eru stuttar hljóðupptökur eða útvarpsþættir á netinu um hin ýmsu mál, svo sem íþróttir, baráttumál, menningu og spjallþættir.

Þeir sem hafa áhuga á að búa til sinn eigin þátt býðst að skrá sig á námskeið, læra að búa til hlaðvarp og geta að loknu námskeiði nýtt sér opið hlaðvarpsstúdíó Fjölmenntar sem hægt er að bóka tvisvar sinnum í viku.

Farið verður í gegum eftirfarandi ferli:

  • Finna efni fyrir þáttinn
  • Búa til handrit
  • Undirbúningur fyrir upptöku
  • Æfa raddbeitingu
  • Undirbúningur fyrir að taka viðtal
  • Taka upp 
  • Setja þáttinn á internetið.

Að auki verður farið í að þróa kynningarefni fyrir hlaðvarpið. Nafn, lógó og fleira sem tengist markaðssetningu.

Námskeiðið er einu sinni í viku í 7 vikur, 2 kennslustundir í senn.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

 

Ýttu hér til að hlusta á þá þætti sem hafa verið búnir til

 

Staður: Fjölmennt
Verð: 11.700
Tími: 7 vikur