Ratleikur í Laugardal

Á námskeiðinu verður farið í ýmsa ratleiki þar sem bæði verða leystar þrautir og gerðar æfingar sem verða víða um Laugardalinn. Lagt verður upp með að skoða umhverfið og hvernig hægt er að nýta útiveru á ýmsum máta og nota ýmislegt í umhverfinu til að gera æfingar.

Í lokin verður boðið upp á hressingu.

Námskeiðstímabil: 18. maí - 30. maí. Nánari tíma- og dagsetning kemur síðar.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki. 

 

Staður: Laugardalur
Verð: 1.000 - 2.000
Tími: 1 - 2 skipti
Þorvaldur Heiðar Guðmundsson
Eydís Hulda Jóhannesdóttir