Skref fyrir skref – gönguhópur fyrir öll
Langar þig að njóta samveru úti i náttúrunni og upplifa þá töfra sem nátttúran býr yfir
Markmið námskeiðsins er að ganga hring í kringum Rauðavatn og njóta samveru, náttúrunnar og hreyfingar.
Við göngum saman í rólegheitum umhverfis Rauðavatn og upplifum fegurð náttúrunnar.
Á leiðinni munum við:
- Upplifa náttúruna, litina, hljóðin og lyktina
- Gera einfaldar öndunaræfingar og stutta hugleiðslu og teygjuæfingar.
- Deila sögum eða minningum sem tengjast náttúrunni
- Tengjast eigin líkama, tilfinningum og núvitund
Að lokinni göngu gefum við okkur stund til að finna þakklæti, ró og stolt yfir því sem við höfum afrekað.
Tími: Mánudagar kl. 11:00 - 14:00
Tímabil: auglýst síðar
Lengd: 5 skipti
Staður: Rauðavatn
Þema: Samvera, náttúra, núvitund og vellíðan.
Umsjón: Rakel Hrund Ágústsdóttir – yogakennari, markþjálfi, þroskaþjálfi og landvættur.
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.
