Útivera og náttúrutenging í öllum veðrum - Nýtt

Útivera, hreyfing og náttúrutenging - í öllum veðrum. Við komum saman og könnum svæði, förum í leiki, hreyfiflæði og endum á núvitundaræfingum þar sem við tengjum okkur við umhverfið og náttúruna.
Á námskeiðinu er áhersla lögð á að upplifa náttúruna eins og hún er hverju sinni. Upplifa veður og vinda, snjó og regn, sól og lykt. Við finnum okkur saman skjólsæla staði, hreyfum okkur, leikum okkur og gerum nútvitunaræfingar úti í náttúrunni.
Markmið námskeiðsins er að finna tengingu við náttúruna. Geta nýtt náttúruna til þess að upplifa ró og að njóta.
Námskeiðið er kennt úti óháð veðurfari og því mikilvægt að klæða sig eftir veðri.
Stefnt er að því að námskeiðið sé kennt í Laugardalnum. Nánari staðsetning auglýst síðar.
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.