Nokkur stutt námskeið í boði á vorönn

​​​​​​​​​​​​​​Vekjum athygli á nokkrum stuttum námskeiðum sem eru í boði á vorönn:

 

Heimagert páskaskraut - FULLT

Á námskeiðinu verður búið til fallegt páskaskraut. Það gæti meðal annars verið skreytt pappaegg, páskakerti eða páskalegt borðskraut

Kennslutímabil: 3 skipti. 2 tímasetningar í boði.

Staðsetning: Fjölmennt Vínlandsleið

Umsóknarfrestur : 25.febrúar

 

Fjármálin mín

Námskeið fyrir þá sem vilja læra meira um peninga og fá betri yfirsýn yfir fjármálin sín

Kennslutímabil: 3 skipti 12.19. og 26. mars kl. 16:30-18:30

Staðsetning: Framvegis símenntun, Borgartúni 20. 3.h

Umsóknarfrestur til 1.mars

 

Páskaeggjagerð - BIÐLISTI

Skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra að tempra súkkulaði og búa til páskaegg sem hægt er að taka með sér heim

Kennslutímabil: 1 skipti 12. mars kl .18-20

Staðsetning: Framvegis símenntun

Umsóknarfrestur til 1.mars

 

Geðheilsa og leiðir til betra lífs

Helgarnámskeið þar sem þátttakendur læra um geðheilsu og leiðir til þess að styrkja og hugsa vel um sig

Kennslutímabil: 11. apríl og 12. apríl kl. 10-14

Kennarar: Íris Indriðadóttir og Guðrún Ólafsdóttir sálfræðingar í Björkinni

Staðsetning: Fjölmennt Vínlandsleið 

Umsóknarfrestur til 10.mars

 

Bragðverkstæðið

Námskeið um næringarfræði þar sem þátttakendur fá fræðslu um næringu og mat. Síðan kíkjum við á bragðverkstæði þar sem þú prófar, blandar og uppgötvar mismunandi brögð og áferðir og sérð hvernig litlar breytingar geta gert hollan mat mun meira spennandi

Kennslulengd: 2 skipti í apríl

Staðsetning: Framvegis símenntun

Umsóknarfrestur til 10.mars

 

Gervigreind hjá Mími

Á námskeiðinu er farið yfir grunnatriði gervigreindar og kannað hvernig hún getur nýst í daglegu lífi

Kennslulengd: 2 skipti

Staðsetning: Mímir símenntun

Umsóknarfrestur til 10.mars

 

Kyrrðarganga

Á námskeiðinu er farið í leiddar kyrrðargöngur eða hæglætisgöngur í náttúrunni

Kennslutímabil: 2 skipti í maí

Staðsetning: Auglýst síðar

Umsóknarfrestur til 10.mars