Ég dansa til að gleyma

Á námskeiðinu ætlum við að dansa til að gleyma óþarfa áhyggjum sem fylgja lífinu. Við ætlum að sletta úr klaufunum og hafa gaman. Lögð er áhersla á að hver og einn þátttakandi fái að kynnast öllu því sem líkami þeirra getur gert. Við könnum alls konar hreyfingar og ólíka dansa og skemmtum okkur við uppáhalds tónlistina okkar.

Settu uppáhalds lagið þitt í athugasemdar dálkinn og við setjum það á spilunarlistann okkar.

 

Námskeiðstímabil: 31. maí til 5. júní.
Nánari tíma- og dagsetning verður ákveðin síðar.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki.

Staður: Auglýst síðar
Verð: 2.000
Tími: Eitt skipti