Enska

Námskeiðið er ætlað byrjendum og þeim sem lengra eru komnir í ensku.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á málnotkun, orðaforða, talmál og ritun. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukna tilfinningu fyrir ensku og auki við orðaforða sinn, geti skilið  texta og fyrirmæli og fái þjálfun í að geta tjáð sig á ensku og náð betri tökum á framburði.

Viðfangsefni verður aðlagað eftir óskum og áhuga þátttakenda hverju sinni.


Námskeiðið er í 10. skipti. Kennt verður tvisvar í viku.
Nánari tíma- og dagsetning verður auglýst síðar.

 

Reynt verður að koma til móts við óskir þátttakenda um tímasetningu.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdum hvaða tímasetning hentar alls ekki.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

 

Staður: Mímir
Verð: 17.000
Tími: 10 vikur