Kaffi-tíminn - nýtt!

Þetta námskeið hentar þeim sem elska að baka. Bakaðar verða kökur og brauð, allt eftir áhuga hvers og eins. Þátttakendur kynnast bökunargerð, helstu bökunaráhöldum og taka þátt í sameiginlegu borðhaldi.  

Unnið er eftir myndrænum/skrifðum uppskriftum eftir því hvað hentar hverjum þátttakanda. 

Stefnt er að því að þátttakendur:  

  • Taki þátt í bökunargerð, borðhaldi og frágangi eftir bökun.  

  • Njóti borðhaldsins 

  • Upplifi ánægjuleg samskipti og njóti stundarinnar  

Umsóknarfrestur er til 20.nóvember. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 17.700 - 29.200 kr.
Tími: 8 - 9 vikur