Leikum okkur með snjalltækin um jólin

Langar þig að læra að gera skemmtilegar jólamyndir eða stutt myndskeið líkt og sjá má á samfélagsmiðlunum Instagram, SnapChat og TikTok?

Langar þig að kynnast fjölbreyttum jóla-leikjum og -þrautum sem hægt er að leika sér með í jólafríinu?

Á þessu námskeiði lærir þú að nýta einföld og ókeypis forrit sem tengjast samfélagsmiðlum til þess að gera skapandi myndefni og þú færð tækifæri til að prófa ýmsa jólatengda leiki sem finna má í AppStore eða PlayStore.

 

Námskeiðin verða haldin á tímabilinu 11. - 19. desember.

Nánari tíma- og dagsetning kemur síðar. 

Umsóknarfrestur er 20. nóvember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 1500
Tími: 1 skipti
Helle Kristensen
Steinunn Guðný Ágústsdóttir
Eydís Hulda Jóhannesdóttir