Listafólk á flakki

Námskeiðið er fyrir þau sem skapa list og hanna, langar að deila sköpun sinni og kynnast listafólki í Evrópu.

Námskeiðið er ætlað fólki sem langar að sýna og deila list sinni og hönnun. Einnig er námskeiðið ætlað þeim sem vilja sjá listsköpun og hönnun annarra og stækka og styrkja þannig eigin sköpunarferli og leiðir til þess að vinna með sköpun sína og koma á framfæri.

Í gegnum námskeiðið verður undirbúin ferð út fyrir landsteinanna sem síðan verður farin á vormánuðum.

Í lokin verður listviðburður sem þátttakendur standa fyrir.

Fjölmennt hefur fengið styrk frá Erasmus fyrir ferðinni.

 

Staður: Fjölmennt
Verð:
Tími:
Steinunn Guðný Ágústsdóttir
Margrét Norðdahl