Macrame - hnýtum plöntuhengi

Á námskeiðinu lærir þú að hnýta algengustu Macrame hnútana og þú færð leiðbeiningar, með myndum, sem þú getur hnýtt eftir þegar heim er komið.

Þú hnýtir plöntuhengi/blómahengi sem þú getur hengt upp heima. Þú færð macrameþræði til að hnýta plöntuhengi, tréhring og trékúlur og lærir að hnýta skemmtilega hnúta. Þú ræður því hversu langt blómahengið á að vera. 

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Elinastudio.

Námskeiðið er eitt skipti í 3 klukkustundir.

 

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Auglýst síðar
Verð: 3.500
Tími: 1 skipti