Tækni og frjáls sköpun

Á námskeiðinu er val um að vinna með ákveðin verkefni og fá kennslu í tækni, aðferðum og meðhöndlun ólíkra tegunda lita og efniviðs og að vinna frjálst að verkefnum allt eftir óskum þátttakenda.

Sem dæmi um verkefni eru: portrett og sjálfsmyndir, uppstilling, klippimyndir og skúlptúr.

Sem dæmi um efnivið eru: vatnslitir, málning, pappamassi og teiknipennar. Gerð verða bæði tvívíð og þrívíð listaverk.

Áhersla er lögð á að ýta undir sköpunargleði þátttakenda og virkja ímyndunarafl þeirra. Að auki verður listfræðsla um verk listafólks í listasögunni.

Stefnt er að því að þátttakendur geti nýtt sér þekkingu sína og færni sjálfum sér til gagns og ánægju.

Kennt er einu sinni í viku, 1 -3 kennslustundir í senn.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Tölvupóstur sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 11.000 - 36.900
Tími: 7 - 14 vikur
Margrét Norðdahl