Taylor Swift
Taylor Swift
Langar þig að læra meira um Taylor Swift?
Taylor Swift er stærsta tónlistarkona í heiminum. Hún hefur gefið út 10 plötur og unnið til margra verðlauna. Taylor Swift er kántrý- og popp-tónlistarkona.
Á námskeiðinu læra þátttakendur um líf Taylor. Farið verður lauslega yfir plöturnar, hlustað á lögin og textar laganna kannaðir en þeir fjalla mikið um hennar eigið líf. Hvað þýðir það að vera Swiftie?
Námskeiðið er í eitt skipti, í 2 kennslustundir.
Nánari tímasetning verður auglýst síðar.
Staður: Fjölmennt, Vínlandsleið.
Námskeiðstímabil sumarnámskeiðanna er 31. maí til 5. júní.
Umsóknarfrestur er til 30.apríl.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki í umsókn hvaða tími hentar alls ekki.