Tölvur og snjalltæki - fyrir lengra komna
Námskeiðið er ætlað þeim sem nota tölvur eða snjalltæki og vilja öðlast aukna færni og þekkingu. Tölvur eru á staðnum en þeir sem sem vilja læra á fartölvur eða snjalltæki hafa meðferðis eigin tæki. Kennt er bæði á Android stýrikerfið og iPad.
Á námskeiðinu er unnið nánar með þá þætti sem þátttakendur vilja efla s.s. algeng forrit og öpp, dýpka þekkingu á notkun Internetsins eða annað sem áhugi er fyrir.
Að loknu námskeiði mun þátttakandi hafa eflt færni sína og þekkingu við notkun tækja sem hann notar.
Kennt verður á haustönn 2019 - 6 skipti.
Tími: Fimmtudagar kl. 10:40 - 12:00
Tímabil: Auglýst síðar.