Setti námskeið í körfu

Endurnýting í handverki

Fallegt og umhverfisvænt fyrir þig eða sem gjöf.

Á þessu námskeiði  búum við til fallega hluti og listaverk  úr efni  sem við endurnýtum. Við pressum blóm og lauf sem við notum til að skreyta með, hluti eins og glerkrukkur sem nýtast sem vasar og kertaluktir. Einnig gerum við falleg  kerti úr kertaafgöngum og  búum til hluti úr pappamassa

Námskeiðið er í 12 vikur, einu sinni í viku, 2 kennslustundir í senn. 

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 26.700 kr - 58.500 kr.
Tími: 12-18 vikur
Nanna Eggertsdóttir