Fjallið mitt - Úlfarsfell
Fjallið mitt – Úlfarsfell
Markmið: Að ganga á Úlfarsfell, kynnast helstu gönguleiðum og upplifa tengingu við náttúruna.
Lýsing:
Úlfarsfell er í úlfársdal í Grafarholti. Fellið er 208 m. og er ca 4,3km á lengd. Gangan tekur um 120 mín. Við leggjum saman af stað upp Úlfarsfell í rólegheitum og gefum okkur tíma til að:
- Þekkja helstu gönguleið og helsta útbúnað
- Upplifa náttúruna, og kyrrðina í hverju skrefi
- Skoða það sem blasir við á toppnum – náttúru, borgina og víðáttuna
- Næra bæði líkama og sál með hreyfingu, samveru og núvitund
Lögð áhersla á að njóta allra ferðarinnar, ekki bara áfangans. Við endum hverja göngu á stuttri þakklætisstund.
Tími: Miðvikudagar kl. 15:00–16:30
Tímabil: 6. maí – 3. júní
Lengd: 5 skipti
Staður: Úlfarsfell
Þema: Hreyfing – náttúra – jafnvægi – innri styrkur
Umsjón: Rakel Hrund Ágústsdóttir – yogakennari, markþjálfi, þroskaþjálfi og landvættur.
