Píla og keila - Nýtt

Á þessu námskeiði æfum við okkur í að kasta pílum og rúlla keilukúlu.
Við lærum reglurnar og spilum saman í rólegu og skemmtilegu umhverfi.
Öll geta tekið þátt og við hjálpumst að.
Helmingur námskeiðsins fer fram í keilu og hinn helmingurinn í pílu.
Markmið námskeiðsins er:
• Hreyfing og hafa ánægju af spili
• Æfa einbeitingu og samvinnu
• Kynnast nýjum leikjum
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.