Stutt námskeið
Vekjum athygli á nokkum stuttum námskeiðum á næstunni.
Mörg spennandi námskeið í boði.
Umsóknarfrestur er mismunandi eftir námskeiðum.
Námskeið um næringarfræði þar sem þátttakendur fá fræðslu um næringu og mat. Síðan kíkjum við á bragðverkstæði þar sem þú prófar, blandar og uppgötvar mismunandi brögð og áferðir og sérð hvernig litlar breytingar geta gert hollan mat mun meira spennandi
Kennslutímabil: 2 skipti, 2 og 9.nóv
Staðsetning: Framvegis símenntun
Tilfinningastjórnun - að skilja og takast á við tilfinningar
Á námskeiðinu lærir þú um tilfinningar, hvernig þær hafa áhrif á okkur og hvað er hægt að gera þegar við eigum erfitt með tilfinningar okkar.
Kennslutímabil: Helgarnámskeið
Staðsetning: Fjölmennt Vínlandsleið
Finnst þér stundum erfitt að vera góð/ur við sjálfa/n þig? Námskeið um sjálfsmynd og sjálfsmat.
Kennslutímabil: Helgarnámskeið
Staðsetning: Fjölmennt Vínlandsleið
Námskeið haldið í samstarfi við Framvegis símenntun, fyrir þau sem vilja læra að búa til konfekt og taka með sér heim.
Kennslutímabil: 1 skipti, 19. nóvember
Staðsetning: Auglýst síðar
Geðheilsa og leiðir til betra lífs
Helgarnámskeið þar sem þátttakendur læra um geðheilsu og leiðir til þess að styrkja og hugsa vel um sig
Kennslutímabil: Helgarnámskeið
Staðsetning: Fjölmennt Vínlandsleið
