Samstarf Fjölmenntar og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) hafa gert með sér samning um hæfnigreiningu þriggja starfa. Um er að ræða störf fyrir starfsfólk sem nýtur þjónustu AMS (Atvinna með stuðningi) og Fjölmenntar.
Lesa meira

Ráðgjafi hjá Fjölmennt heldur námskeið fyrir Reykjavíkurborg

Ráðgjafi hjá Fjölmennt heldur námskeið fyrir Reykjavíkurborg. Á haustönn heldur Helle Kristensen ráðgjafi hjá Fjölmennt námskeið að beiðni skrifstofu um málefni fatlaðs fólks á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar fyrir stjórnendur í búsetuþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík.
Lesa meira

Opið fyrir umsóknir í Bataskóla Íslands

Opið fyrir umsóknir! Sendið póst á bataskoli@gmail.com til þess að skrá ykkur! Nú er tækifæri til þess að skrá sig í Bataskólann og fræðast um geðheilsu frá ýmsum sjónarhornum og kynnast fjölbreyttum verkfærum til þess að hlúa að eigin geðheilsu og vellíðan.
Lesa meira

Matar- og framleiðslubraut í Fjölmennt

Á haustönn er kennd námsbrautin Matar- og framreiðslubraut og hófst námið í byrjun september. Brautin er hugsuð fyrir þau sem vilja öðlast reynslu og fá undirbúning í því að matreiða og framreiða mat fyrir eldhús og mötuneyti.
Lesa meira

Breytingar á stjórn Fjölmenntar

Á ársfundi í vor urðu breytingar í stjórn Fjölmenntar.
Lesa meira

Nýr tengiliður við ráðuneyti - Úttekt á starfsemi Fjölmenntar

Í byrjun árs hófst úttekt á starfsemi Fjölmenntar. Úttektin var gerð að ósk Menntamálaráðuneytisins og lauk þeirri vinnu síðastliðið vor. Úttektin var unnin af Menntavísindastofnun Menntavísindasviðs HÍ. Úttektin er liður í endurnýjun á samningi Fjölmenntar við Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og endurskoðun á hlutverki og verkefnum Fjölmenntar.
Lesa meira

Til hamingju Lára

Besta frétt síðustu viku var fréttin um að Lára Þorsteinsdóttir hafi fengið inngöngu í Háskóla Íslands þar sem hún verður nemandi í sagnfræði. Lára var ein af fyrirlesurum á ráðstefnu Fjölmenntar Nám er fyrir okkur öll sem haldin var í mars síðast liðnum.
Lesa meira

Kristín leysir Ásu af

Ásgerður Hauksdóttir verkefnastjóri Fjölmenntar eða Ása eins og hún er oftast kölluð er á leið í námsleyfi og mun Kristín Eyjólfsdóttir taka við hennar starfi veturinn 2022-2023.
Lesa meira

Gildi Fjölmenntar

Símenntunar- og þekkingarmiðstöðin Fjölmennt var stofnuð árið 2002 og á því 20 ára afmæli í ár. Ýmislegt hefur verið gert í tilefni þess og ber þar hæst ráðstefnan Nám er fyrir okkur öll sem haldin var í lok mars. Um 200 manns sóttu ráðstefnuna sem var árangursrík og skemmtileg. Einnig var á vorönninni haldin vegleg árshátíð og glæsilegir vortónleikar.
Lesa meira

Opið fyrir umsóknir í Fjölmennt - Geðrækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Fjölmennt - Geðrækt. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst.
Lesa meira