Tónlist og leiklist
Gömlu góðu lögin
Þátttakendur fræðast um tónlist og tónlistarfólk og tala saman um þetta sameiginlega áhugamál.
Hljóðheimur hljómborðsins
Á námskeiðinu er unnið með hljómborð á fjölbreyttan hátt.
Unnið er með upplifun á hljóði og takti.
Klassísk tónlist
Námskeiðið er fyrir þau sem hafa einlægan áhuga á klassískri tónlist.
Unnið er með hlustun og fræðslu um tónlistina og tónskáldin.
Kvennahljómsveit
Manstu eftir Grýlunum og Dúkkulísunum? Hefur þú fylgst með hljómsveitinni FLOTT eða Reykjavíkurdætrum?
Námskeið fyrir þær sem langar að prófa að spila eða syngja í kvennahljómsveit.
Leikhús-Perlur
Leiklistar- og menningar-klúbbur þar sem félagar hittast og tala um leiksýningar, tónleika og fleira.
Leiklist
Á námskeiðinu vinnum við saman sem hópur að því að búa til stutta leiksýningu.
Þátttakendur æfa sig í að koma fram, skapa persónur og miðla til áhorfenda.
Litir og tónar
Námskeið þar sem þátttakendur upplifa tónlist og myndlist með hljóðum og snertingu.
Námskeiðið hentar vel fyrir þau sem hafa litla hreyfigetu.
Rokkað í rýminu
Námskeiðið er fyrir þau sem hafa einlægan áhuga á rokktónlist.
Unnið er með hlustun og að hver og einn tjáir sig um tónlistina sem verið er að hlusta á.
Tónlist og dans
Námskeiðið er fyrir þau sem hafa áhuga á tónlist og dansi.
Unnið er með hlustun, hreyfingu og einföld dansspor.
Tónlistarstöðvar
Á námskeiðinu er unnið með tónlist á fjölbreyttan hátt.
Þátttakendur fá tækifæri til að finna sinn innri tónlistarmann.
Tónsköpun
Námskeið fyrir þau sem vilja semja sína eigin tónlist.
Á námskeiðinu er unnið með hugmyndir, tónsköpun og form í tónlist.