Mál og samfélag
Enska
Námskeiðið er ætlað byrjendum og þeim sem lengra eru komnir í ensku. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á málnotkun, orðaforða, talmál og ritun.
Íslenska fyrir fólk af erlendum uppruna
Þetta er námskeið fyrir fólk af erlendum uppruna með þroskahömlun sem vilja byrja að læra íslensku sem annað mál eða bæta sig í íslensku.
Radio Fjölmennt
Á námskeiðinu læra þátttakendur að búa til sína eigin þætti fyrir podcast/hlaðvarp.
Podcast/hlaðvarp eru stuttar hljóðupptökur eða útvarpsþættir á netinu um hin ýmsu mál.
Samtaka um hringrásarkerfið
Veistu hvað hringrásarkerfi er? Hvað er endurnýting? Hvernig á að flokka?
Segjum sögur
Allir geta sagt sögu.
Á námskeiðinu fá þátttakendur tækifæri til að segja sögur; sögur úr hversdagslífinu, brandarar, skapandi sögur, sögur úr menningunni.
Skapandi skrif
Langar þig að skrifa sögu en veist ekki alveg hvernig á að byrja eða vantar hvatningu. Þá er þetta ritlistarnámskeið fyrir þig.
Þýska
Þetta er námskeið fyrir byrjendur og þá sem eru komnir aðeins lengra og hafa áhuga á að kynnast nýju tungumáli.