Opið fyrir umsóknir um nám á haustönn 2026
Nú er hægt að sækja um nám á haustönn 2026.
Í boði eru mörg spennandi og áhugaverð námskeið sem hægt er að skoða hér
Við vekjum athygli á nokkrum nýlegum og nýjum spennandi námskeiðum:
Lestur - Námskeið ætlað fyrir þau sem vilja læra eða æfa sig í lestri
Nú ljóðin óma - Námskeið í ljóðagerð og ljóðalestri
Skapandi skrif - Námskeið fyrir þau sem vilja skrifa t.d. sögur eða handrit
Skynjunarsögur íslensk menning - námskeið fyrir fólk með fjölbreyttar tjáskiptaleiðir sem vilja fræðast í gegnum skynjun
Fjallið mitt - námskeið í Fjallgöngu og náttúrulæsi
Skref fyrir skref - námskeið í útiveru, náttúrulæsi og núvitun
Markþjálfun styrkleikarnir mínir - Námskeið þar sem unnið er að markmiðasetningu og nýta eigin styrkleika
Tengjumst - námskeið fyrir fólk með fjölbreyttar tjáskiptaleiðir sem vill tengjast öðrum
Styrkur og slökun í vatni - styrktaræfingar í vatni
Fatasaumur - námskeið í fatasaumi
Tölvuleikjagerð með Scratch - námskeið i tölvuleikjagerð í samstarfi við opna Háskólan í Reykjavík
Viltu læra leiklist? - Námskeið fyrir þau sem vilja kynnast leiklist og leikhúsi
Söngleikir - námskeið í söngleikjum,söng, dansi og leiklist
Línudans - stutt námskeið fyrir þau sem langar að prófa línudans
Stuðmennt - námskeið um hljómsveitina Stuðmenn
Hekl - fyrir þau sem vilja læra að hekla
Umsóknarfrestur fyrir nám á haustönn er 16.júní
